Lög félagsins

Lög félagsins

1.Forsvarsmenn okkar eru stjórnendur sem hafa sameiginleg markmið okkar í fyrirrúmi.

2.SAOF má ljá öðrum samtökum nafn sitt svo lengi sem um sameiginlegan málstað sé um að ræða.

3.Félagsmenn í SAOF eru einungis áhugamenn og SAOF má ekki safna fjármunum eða lausafé öðruvísi en með innbyrðis samskotum eða söfnunum og styrkjum sem eingöngu þjónar okkar markmiðum.

4.SAOF má ekki taka afstöðu til annarra mála en sinna eigin og nafni okkar skal haldið utan við deilur og dægurþras og afstaða okkar útávið byggist á aðlögun ekki áróðri.

5.Hverjum félagsmanni er heimilt að bera fram hugmynd á félagsfundum, heimasíðu og/eða við stjórnina og í framhaldi af því verða þær teknar til lýðræðislegrar umræðu og kosningu.

6.SAOF félagsmenn  geta boðið sig fram í  hvaða verkefni er á vegum SAOF, telji þeir sig hæfan til að takast á við málefnið og stjórn og félagsmenn félagsins sé því samþykk og telji það þjóna markmiðum félagsins.

7. Meðlimir SAOF skulu ávallt sýna hvor öðrum

 virðingu og vinna að markmiðum félagsins með vinsemd og kærleik að leiðarljósi.

8.Það sem kemur inn á borð SAOF er bundið fullum trúnaði og nafnleynd heitið.